Rafræn opinber þjónusta
Hádegisfundur á Grand hóteli
11. jan. kl. 12-14
“Hvert stefnir rafræn opinber þjónusta?”
Twitter: @SkyIceland #Rafraen
Mikil áhersla er lögð á að gera rafræna opinbera þjónustu á Íslandi skilvirkari og notendavænni. Jafnframt eru Íslendingar þátttakendur í verkefnum innan Evrópu sem miða að samræmingu rafrænna upplýsinga og að rafrænar upplýsingar geti flætt á skilvirkan hátt milli stofnanna, sveitafélaga, fyrirtækja og einstaklinga hvort sem er innan lands eða milli landa. Í fyrirlestrunum verður leitast við að gefa hugmyndir um hvað megi betur fara og hvað er verið að gera til að vinna að framþróun rafrænnar opinberrar þjónustu á Íslandi.
Fyrir alla sem hafa áhuga og skoðun á því hvað megi betur fara í opinberri þjónustu á Íslandi.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Er hið opinbera tilbúið fyrir tæknibyltingu
Ragnheiður Magnúsdóttir, Vísinda- og tækniráð
12:40-13:00 Áherslur hjá ríkinu í upplýsingatækni
Einar Birkir Einarsson, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
13:00-13:20 Allt gerist einhversstaðar - Grunngerð landupplýsinga á Íslandi
Eydís Líndal Finnbogadóttir, Landmælingar Íslands
13:20-13:40 Snör í snúningum
Bragi Leifur Hauksson, Þjóðskrá Íslands
13:40-14:00 Mikilvægi samvirkni í opinberri þjónustu
Hjörtur Þorgilsson, Icepro
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Guðrún Birna Finnsdóttir, Ríkiskaup
Undirbúningsnefnd: Stjórn faghóps Ský um rafræna opinbera þjónustu.
Matseðill:Lasagne - ítalskt brauð - ferkst salat með mozzrella, mangó og hnetum - balsamic-sinneps-vinaigrette. Sætindi / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 9.700 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 4.000 kr.
-
11. janúar 2017