UT-dagurinn
Dagur upplýsingatækninnar 2016 á Grand hóteli
fimmtudaginn 1. desember kl. 13:00-16:30
"Stefnumót við örugga framtíð
– Ógnir, tækifæri og áskoranir"
Twitter: @SkyIceland #UTdagurinn
UPPTÖKUR AF FYRIRLESTRUM - ÝTTU HÉR
Dagur upplýsingatækninnar (UT-dagurinn) hefur verið haldinn árlega frá árinu 2006 af stjórnvöldum en að deginum standa innanríkisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Skýrslutæknifélagið. Tilgangur dagsins er að fjalla um það sem er efst á baugi í upplýsingatæknimálum hjá stjórnsýslunni.
UT-dagurinn 2016 er tileinkaður vaxandi ógnum sem steðja að öryggi upplýsinga, kerfa og neta og hvernig brugðist verður við þeim með umtalsverðum breytingum á löggjöf. Um er að ræða fyrirsjáanlegar breytingar á löggjöf um persónuvernd og innleiðing á svokallaðri NIS-tilskipun um net- og upplýsingaöryggi. Þær lagabreytingar munu hafa umtalsverð áhrif á opinbera aðila og fyrirtæki. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar verður forstjóri norsku Persónuverndarstofnunarinnar, Bjørn Erik Thon, og er titill hans erindis: Tracking online and offline – is there hope for data protection?
DAGSKRÁ:
13:00-13:15 Setningarávarp: Innanríkisráðherra/ráðuneytisstjóri
13:15-13:35 Nýjar Evrópureglur um persónuvernd - Auknar kröfur til íslenskrar stjórnsýslu
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar
13:35-13:55 Innleiðing nýs persónuverndarregluverks – verkefni næstu missera
Rósa Dögg Flosadóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneyti
13:55-14:30 Tracking online and offline – is there hope for data protection?
Bjørn Erik Thon, forstjóri norsku Persónuverndarstofnunarinnar (Datatilsynet)
14:30-14:45 Raunhæft dæmi um persónuvernd grunnskólabarna
Alma Tryggvadóttir, skrifstofustjóri upplýsingaöryggis hjá Persónuvernd
14:45-15:10 Kaffi
15:10-15:40 Er þjóðfélagið í stakk búið að takast á við netárásir? - Bætt netöryggi mikilvægra innviða
Hrafnkell Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar og
Vera Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneyti
15:40-16:00 Tölvurannsóknir, rannsóknir á netglæpum og netöryggi
Steinarr Kr. Ómarsson, lögreglufulltrúi, Tölvurannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
16:00-16:20 Staða og þekkingaruppbygging í netöryggismálum á Íslandi
Svavar Ingi Hermannsson, ráðgjafi í netöryggismálum
Ráðstefnustjóri: Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands
Verð fyrir félagsmenn Ský: 10.900 kr.
Verð fyrir utanfélagsmenn: 16.900 kr.
Verð fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 6.000 kr.
-
1. desember 2016