Skýjalausnir
Hádegisfundur á Grand hóteli
16. mars kl. 12-14
Skýjalausnir: Peningana eða persónuvernd?
Twitter: @SkyIceland #Skyjalausnir
Nú þegar kostnaður við skýjalausnir hríðfellur, en álitaefni tengd þessum lausnum eru óleyst, svo sem varðandi öryggi og persónuvernd, þurfa stofnanir og fyrirtæki að spyrja sig: Hver er raunverulegur kostnaður þess að að flytja tölvupóst og öll önnur gögn í skýið? Öryggishópur Skýrslutæknifélagsins mun halda hádegisverðarfund um þetta brennandi málefni á Grand Hóteli miðvikudaginn 16. mars. 2016, kl. 12-14.
Fundurinn er öllum opinn en er einkum ætlaður öllum þeim sem standa frammi fyrir því að velja hvar hýsa skuli þær upplýsingar sem unnið er með hjá fyrirtækjum og hinu opinbera.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Hver er hinn raunverulegi ávinningur af skýjalausnum?
Sævar Haukdal, Microsoft á Íslandi
12:40-13:00 Vandinn með persónuvernd og öryggi í skýjalausnum
Hörður Helgi Helgason, Landslög
13:00-13:20 Sjónarhóll kaupandans
Einar Þórarinsson, Advania
13:20-13:40 Pallborðsumræður
13:45 Fundarslit
Fundarstjóri: Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar
Undirbúningsnefnd: Öryggishópur Ský
Matseðill: Rauðspretturúlla með rækjufyllingu, á fennelbyggi og dillsósu. Konfekt / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.
-
16. mars 2016