Aðalfundur Ský
Aðalfundur Ský
fimmtudaginnn 25. febrúar 2016 kl. 16:30-18+
Engjateigi 9, kjallara (Verkfræðingahúsið)
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins. Fundurinn er einungis opinn skráðum félagsmönnum í Ský.
Boðið verður uppá léttar veitingar og hvetjum við alla til að efla tengslanetið í góðra vina hópi eftir fundinn.
Vinsamlegast tilkynnið komu með tölvupósti á sky@sky.is
Hér er hægt að sjá samþykktir félagsins
FAGHÓPAR INNAN SKÝ eru eftirtaldir og er kosið í stjórn þeirra á aðalfundi Ský (nema Öldungadeild):
- Fjarskipti
- Fókus - upplýsingatækni í heilbrigðisgeiranum
- Hugbúnaðargerð
- Menntun, fræðsla og fræðistörf í UT
- Rafræn opinber þjónusta
- Rekstur tölvukerfa
- Vefstjórnun
- Öryggismál
- Öldungadeild
Auk þess vantar fólk í Orðanefnd Ský, Siðanefnd og Ritnefnd Tölvumála ásamt stjórn Ský.
Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn, faghópa eða nefndir Ský eru beðnir að hafa samband í gegnum sky@sky.is sem fyrst. Bendum á að tilkynna þarf um framboð í stjórn Ský eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund.
-
25. febrúar 2016