Innri vefir
Hádegisfundur á Grand hóteli
14. janúar 2015 kl. 12-14
“Hulunni svipt af innri vefjum”
Twitter: @SkyIceland #InnriVefir
Margir innri vefir eru hálf munaðarlausir og eru lítið annað en matseðill og fréttir á stangli meðan önnur fyrirtæki eru sannfærð um mikilvægi innri vefsins og hafa sett þau mál í forgang.
Á þessum fundi verður hulunni svipt af innri vefjum nokkurra fyrirtækja sem hafa nýlega gengið í gegnum endurnýjun lífdaga eða komið innri vef upp í fyrsta sinn. Þeir endurspegla því vel þá þróun sem er að eiga sér stað í innri vefjum fyrirtækja í dag.
Spurningum á borð við - hverjir sinna innri vefnum, hvað er á honum, hverjar eru þarfir starfsmanna og hvernig gekk að setja hann upp? - verður svarað og fjöldi skjáskota verður sýndur.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Betri nýting með góðri hönnun
Sigurður Anton Ólafsson, Icelandair
12:40-13:00 Þegar risaeðlan fékk vængi
Stefanía Ragnarsdóttir, Fjársýslu ríkisinis
13:00-13:20 Innri vefur Marel
Björgvin Brynjólfsson, Marel
13:20-13:40 Samfélagsmiðaður innri vefur hjá dreifðu fyrirtæki
Díana Dögg Víglundsdóttir, N1
13:40-14:00 Pallborðsumræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Hreinn Hreinsson, vefstjóri Reykjavíkurborgar
Undirbúningsnefnd: Faghópur um vefstjórnun
Matseðill:Pönnusteikt langa, tómat salsa sósa, kryddjurta risotto og parmesan osti.
Konfekt / kaffi /te á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.
-
14. janúar 2015