UT-dagurinn
DAGUR UPPLÝSINGATÆKNINNAR 2014
"Byggjum, tengjum og tökum þátt"
27. nóvember kl. 13:00-17:00
á Grand hóteli
Twitter: @SkyIceland #UTdagurinn
Dagur upplýsingatækninnar (UT-dagurinn) hefur verið haldinn árlega frá árinu 2006 af stjórnvöldum. Tilgangur dagsins er að fjalla um það sem er efst á baugi hverju sinni hjá stjórnsýslunni. UT-dagurinn 2014 er tileinkaður þeim verkefnum sem eru í gangi skv. upplýsingatæknistefnu stjórnvalda og eru á framkvæmdastigi.
Dagskrá:
13:00-13:15 Setningarávarp
13:15-13:35 Opin og gegnsæ stjórnsýsla:
Opin gögn – nýsköpun og aukið gegnsæi
Tryggvi Björgvinsson, verkefnisstjóri, Open Knowledge
13:35-14:15 Skipulag, öryggi og samvirkni:
Landsarkitektúr fyrir opinber kerfi
Hermann Ólason, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs, Tryggingastofnunar
Net- og upplýsingaöryggi – hvað eru stjórnvöld að gera í málinu?
Sigurður Emil Pálsson, sérfræðingur í innanríkisráðuneyti
14:15-14:35 Hagræðing, skilvirkni og sjálfbærni:
Rafrænir reikningar um áramót
- mikilvægt skref til hagræðingar með rafrænum viðskiptum
Hjörtur Þorgilsson, formaður Icepro
14:35-15:00 Kaffihlé
15:00-15:40 Lýðræði:
Virkir og gegnsæir samráðsferlar á netinu
Arnar Pálsson, ráðgjafi Capacent
Öruggar rafrænar undirskriftasafnanir
Halla Björg Baldursdóttir, sviðsstjóri hjá Þjóðskrá Íslands
15:40-16:00 Þjónusta:
Sjúklingagáttin Vera komin í loftið
Ingi Steinar Ingason, verkefnisstjóri hjá Embætti Landlæknis
16:00-16:10 Örstutt kaffipása - fyllt á bollann og teygt úr sér
16:10-16:30 Rafræn fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra
Bryndís Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur skráarsviðs ríkisskattstjóra
16:30-16:50 Fjarskipti:
Árangur í fjarskiptum
Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs
Ráðstefnustjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytissstjóri í innanríkisráðuneyti
Verð fyrir dagskrá UT-dagsins eftir hádegið:
Félagsmenn Ský: 10.500 kr.
Utanfélagsmenn: 15.900 kr.
Gestum UT-dagsins býðst að taka þátt í fræðslufundi á undan UT-deginum um upplýsingaöryggi á opinberjum vefjum en gestir þurfa að skrá sig sérstaklega á hann um leið og skráning á UT-daginn fer fram
Nánari dagskrá fræðslufundarins
-
27. nóvember 2014