Er vefstjórinn forstjóri í þínu fyrirtæki?
Hádegisfundur
27. ágúst 2014 kl. 12-14
Grand hóteli
“ Er vefstjórinn forstjóri í þínu fyrirtæki?
- Um mikilvægi skýrrar vefstefnu”
Twitter: @SkyIceland #vefstefna
Hér má sjá umfjöllun vb.is um viðburðinn og flottar myndir
Fæst fyrirtæki og stofnanir hafa mótað sér vefstefnu. Vefmál eru sjaldnast hluti af heildarstefnumótun ena hefur hún líklega verið unnin áður en vefurinn öðlaðist þá viðurkenningu sem hann hefur í dag. Vefstjórar fylgja því eigin stefnu sem rímar ekki endilega við stefnu fyrirtækisins. Hver er það þá sem ræður? Hvaða sjónarmiðum er vefurinn að miðla?
Þessi viðburður er tilvalinn fyrir alla sem hafa brennandi áhuga á vefmálum, forstjóra jafnt sem vefstjóra og svo auðvitað alla hina líka.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:20 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:20-12:40 Mikilvægi vefstefnu. Ertu háseti eða skipstjóri á þínum vef?
Sigurjón Ólafsson, Fúnksjón vefráðgjöf
12:40-13:00 Hvernig er vefstefna byggð upp? Vefstefnumótun hjá HÍ og N1
Díana Dögg Víglundsdóttir, vefstjóri N1
13:00-13:20 Eða er forstjórinn vefstjórinn í fyrirtækinu?
Magnús Þór Gylfason, Yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar
13:20-13:40 www.re.is - Nýr vefur, ný stefna
Hjalti Sigfússon, vefstjóri Reykjavik Excursions
13:40-14:00 Pallborðsumræður
14:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Hildur Óskarsdóttir, vefstjóri Flugfélags Íslands
Undirbúningsnefnd: Faghópur Ský um vefstjórnun
Matseðill: Sjávarréttapasta tagliatelle með humar og hörpuskel, grilluðu hvítlauksbrauði og fersku salati. Kaffi / te og konfekt á eftir.
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.000 kr.
-
27. ágúst 2014