Ungmenni og netið
Hádegisfundur á Grand hótel 14. nóvember 2012 kl. 12-14
"Netið, ungmenni og upplýsingaöryggi"
Taktu þátt í umræðunni á Twitter @SkyIceland #UngNet
Samfélagsmiðlar á Netinu á borð við Facebook safna víðtækum persónuupplýsingum um notendur sína, oft án þess að upplýst sé hvernig þær muni verða nýttar. Með því að greiðslumiðlun færist í auknum mæli á Netið eykst hættan á skipulagðri brotastarfsemi sem beinist gegn greiðslukerfum. Þá er Netið helsta aðgangsleið fyrir ógnir gegn upplýsingakerfum. Þessi álitaefni eru einkar áleitin þegar börn eiga í hlut en Netið er helsti samskiptamiðill ungs fólks. Öryggishópur Ský stendur fyrir hádegisfundi um þetta málefni. Fundurinn er öllum opinn en það þarf að skrá sig fyrirfram á fundinn.
Dagskrá:
11:50-12:05 Afhending gagna
12:05-12:15 Fundur settur og hádegisverður borinn fram
12:15-12:35 Raunveruleg hætta eða ys og þys útaf engu
Helgi Gunnlaugsson, Háskóla Íslands
12:35-12:55 Helstu hættur sem steðja að ungu fólki á Netinu í dag
Hafþór Birgisson, SAFT– Samfélag, fjölskylda og tækni
12:55-13:15 Börn á netinu og persónuvernd
Vigdís Eva Líndal, Persónuvernd
13:15-13:35 Rannsóknir á glæpum tengdum upplýsingatækni
Steinarr Kristján Ómarsson, lögreglu höfuðborgarsvæðisins
13:35-14:00 Umræður og fundarslit
Fundarstjóri: Ásrún Matthíasdóttir, Háskólanum í Reykjavík.
Matseðill: Smjörsteikt kalkúnabringa með ávaxta og ostafyllingu ásamt surpreme sósu. Konfekt / kaffi /te á eftir.
Undirbúningsnefnd: Faghópur Ský um öryggismál - Hörður Helgi Helgason, Landslög og Sigurður Másson, Advania
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský 4.900 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn 7.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar 3.000 kr.
-
14. nóvember 2012