Skip to main content

Þróun þráðlausra samskiptalausna

Hádegisfundur á Grand hóteli
19. nóvember 2014 kl. 12-14

“Þróun þráðlausra samskiptalausna”

Twitter: @SkyIceland #thradlaus

Nútíma farsímatækni fleygir fram eins og margir ættu að þekkja. Fyrir innan við 10 árum þótti 3G farsímatæknin allt of dýr til að lítið land á við Ísland myndi standa í uppbyggingu á slíkri tækni. Eitt símafélag reið á vaðið með uppbyggingu á 3G  og annað félag fylgdi fast á eftir. Ekki tíu árum síðar eru alls 4 símafélög með úthlutað tíðnileyfi til að byggja upp  arftaka 3G farsímatækninnar; 4G! Símaþjónustu, netþjónustu og sjónvarpsþjónustu í farsímann þekkja flestir ef ekki allir.

Á hádegisfundinum er ætlunin að kynna ögn önnur tækifæri og aðra möguleika í nýtingu farsímatækninnar í atvinnulífinu almennt. Hvernig er verið að nýta farsímatæknina nú þegar fyrir utan hefðbundnu þjónusturnar (far)síma, net og sjónvarp.

Fyrir alla sem áhuga hafa á hagnýtri nýtingu nútíma farsímatækni.

Dagskrá:

11:50-12:05  Afhending gagna

12:05-12:20  Fundur settur og hádegisverður borinn fram

12:20-12:40  Er hægt að borga með símanum?
Skoðað verður hvernig hægt er að nota snjallsíma sem greiðslukort í stað hefðbundinna greiðslukorta úr plasti. Hvaða tækni þarf að koma til og hvaða leiðir eru í boði?
Borgar Erlendsson, Valitor

12:40-13:00  Undirskriftir og rafræn auðkenning
Fjallað verður um rafræn skilríki til auðkenninga og undirritana. Mismunandi leiðir eru til auðkenninga og eru rafræn skilríki á farsíma þar ört vaxandi. Rafrænar undirritanir eru orðnar mikilvægur þáttur í rafrænum viðskiptum í nágrannalöndum okkar og felast í þeim mikil tækifæri til lækkunar viðskiptakostnaðar. Á Íslandi eru dæmi um notkun rafrænna undirritana en búast má við að notkun þeirra vaxi ört á næstu árum.
Haraldur Bjarnason, Auðkenni

13:00-13:20  Rauntímaferilvöktun
Farið verður yfir raunverulegt dæmi um rauntímaeftirlit með hitastigi og staðsetningu sendinga.  Í dæminu er íslenskur hugbúnaður, vélbúnaður og þjónusta nýtt til að leysa áskoranir sem fylgja eftirliti og flutningum á viðkvæmum eða verðmætum varningi.
Jón Birgir Gunnarsson, Controlant og Freyr Hólm Ketilsson, Vodafone

13:20-13:40  Rafrænar undirritanir, aukin þægindi
Fullgild rafrænar skilríki opna nýjan heim tækifæra í viðskiptum og rekstri fyrirtækja. Með því að nota rafræn skilríki til innskráninga og undirrituna er hægt að taka næsta skrefið í pappírslausu umhverfi en einnig tryggja aðgengi að upplýsingum og samskiptum óháð stað og stund. 
Óskar Þór Þráinsson, AZAZO

13:40-14:00  Snjallsímagreiðslulausn
Pyngjan er app sem er hluti af snjallsímagreiðslulausn. Í erindinu verður fjallað um uppbyggingu og virkni kerfisins.
Dagný Halldórsdóttir, Pyngjan

14:00            Fundarslit

Fundarstjóri: Snorri Petersen, Landsbankinn
Undirbúningsnefnd: Gunnar Bachmann Hreinsson, Efla verkfræðistofa og Theodór Carl Steinþórsson, Vodafone

Matseðill: Kjúklingabringa með sveppa og pekanhnetufyllingu, spínati, grænmeti og portvínssósu. Konfekt / kaffi /te á eftir.

Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský: 5.500 kr.
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn: 8.900 kr.
Þátttökugjald fyrir aðila utan vinnumarkaðar: 3.500 kr.



  • 19. nóvember 2014